Felix og Herbert
Skrevet av: Þýtt frá Code Club UK
Oversatt av: Stein Olav Romslo og Aldís Mjöll Geirsdóttir
Kynning
Við munum búa til tölvuleik þar sem kötturinn Felix ætlar að elta músina Herbert. Þú stýrir Herbert með músarbendlinum og átt að reyna lifa af eins lengi og hægt er. Því lengra sem þú heldur út, því fleiri stig færðu.

Skref 1: Felix eltir músarbendilinn
Við viljum að Felix elti músarbendilinn.
Gátlisti
-

-
þegar smellt er á @greenFlag endalaust stefna í átt að [músarbendill v] fara (10) skref næsti búningur end
Prófaðu verkefnið
Smelltu á græna fánann.
Vistaðu verkefnið
Ef þú ert með Scratch-reikning geturðu vistað verkefnin þín. Scratch gerir þetta sjálfkrafa en þú getur líka gert það.
Ef þig vantar reikning geturðu því miður ekki vistað.
Skref 2: Felix eltir Herbert
Nú viljum við að Felix elti músina Herbert í staðinn fyrir músarbendilinn.
Gátlisti
-
þegar smellt er á @greenFlag endalaust fara til [músarbendill v] stefna í átt að [Felix v] end
Prófaðu verkefnið
Smelltu á græna fánann.
Skref 3: Felix segir að hann hafi náð Herbert
Við viljum að Felix segi okkur þegar hann nær Herbert.
Gátlisti
-
þegar smellt er á @greenFlag endalaust stefna í átt að [músarbendill v] fara (10) skref næsti búningur ef <snertir [Herbert v]> þá segðu [Náði þér!] í (1) sekúndur end end
Prófaðu verkefnið
Smelltu á græna fánann.
Skref 4: Herbert deyr
Við viljum að Herbert breytist í draug þegar Felix nær honum og hann deyr
Gátlisti
-
þegar smellt er á @greenFlag endalaust stefna í átt að [músarbendill v] fara (10) skref næsti búningur ef <snertir [Herbert v]?> þá senda [Náð! v] spila hljóð [Meow] segðu [Náði þér!] í (1) sekúndur bíða í (1) sekúndur end end -
þegar ég fæ sent [Náð! v] breyttu í búning [dauður v] bíða í (0.5) sekúndur breyttu í búning [lifandi v]
Prófaðu verkefnið
Smelltu á græna fánann.
Skref 5: Telja stig
Við bætum við stigum þannig að þú getir séð hve lengi Herbert lifir. Við byrjum á núlli en síðan bætist við eitt stig á hverri sekúndu. Ef Felix nær Herbert töpum við tíu stigum.
Gátlisti
-

Sérðu að
Stig 0birtist uppi til vinstri? -
þegar smellt er á @greenFlag láttu [Stig v] verða [0] endalaust bíða í (1) sekúndur breyttu [Stig v] um (1) end þegar ég fæ sent [Náð! v] breyttu [Stig v] um (-10)
Prófaðu verkefnið
Smelltu á græna fánann.
Vistaðu verkefnið
Leikurinn er tilbúinn. Vel gert! Nú geturðu spilað!
Ef þú forritaðir leikinn með Scratch-reikningnum þínum geturðu deilt honum með öðrum þegar þú smellir á Deila efst á skjánum.
Forbedre denne siden
Funnet en feil? Kunne noe vært bedre?
Hvis ja, vennligst gi oss tilbakemelding ved å lage en sak på Github eller fiks feilen selv om du kan. Vi er takknemlige for enhver tilbakemelding!








